Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) styður jarðhitaframleiðslu á Íslandi 

17.4.2026 Press release
Image: Orkuveita Reykjavíkur. From left: Tiina Kuusela, Senior Banker NIB, Dmitri Kouznetsov, Director, Head of Public Sector & Utilities NIB, Sævar Freyr Þráinsson, CEO Reykjavík Energy, Árni Hrannar Haraldsson, CEO ON Power, and Snorri Hafsteinn Þorkelsson, CFO Reykjavík Energy.
  • Norræna fjárfestingarbankanum (NIB) og Orkuveitu Reykjavíkur hafa undirritað 10 ára lánasamning að fjárhæð 4.625 milljónir króna (32 milljónir evra) til samfjármögnunar framkvæmda hjá ON Power við Hellisheiðarvirkjun á árunum 2025–2027. 
  • Verkefnið felur í sér aukna varmaframleiðslu til húshitunar, borun nýrrar vinnsluholu sem og byggingu nýs viðhalds- og geymsluhúsnæðis. 
  • Heildarkostnaður verkefnisins nemur 6.338 milljónum krórna. 

Íbúum Reykjavíkur hefur fjölgað jafnt og þétt á síðasta áratug, og gert er ráð fyrir að fjöldi íbúa muni halda áfram að vaxa næsta áratuginn. Fyrirhugaðar fjárfestingar munu auka framboðsöryggi og búa undir aukna eftirspurn  hitaveitu. 

Varmaframleiðslugeta virkjunarinnar mun aukast úr 220 MW í 345 MW. Gert er ráð fyrir að þessi aukna geta skili að jafnaði 50.000–100.000 MWh af endurnýjanlegum varma á álagstímum í upphafi, með aukinni nýtingu eftir því sem byggðin á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að stækka. Að auki er áætlað að nýja vinnsluholan skili 5 MW í raforku (MWe). 

„Þessi fjárfesting er mikilvægt skref til að styrkja þol og getu jarðhitakerfa til að mæta vaxandi eftirspurn á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem þörf fyrir heitt vatn og raforku eykst ár frá ári er nauðsynlegt að fjárfesta í sjálfbærum og framtíðarþolnum innviðum. Með því að auka framleiðslugetu Hellisheiðarvirkjunar tryggjum við örugga, skilvirka og áreiðanlega orkuframleiðslu til samfélagsins og nýtum jafnframt verðmætar, hreinar jarðhitaauðlindir Íslands til fulls,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. 

„Hámarksþörf fyrir heitt vatn í Reykjavík eykst árlega um 120 lítra á sekúndu.“ Það er okkur sönn ánægja að styðja við Orkuveitu Reykjavíkur, sem hefur verið ‑ langvarandi viðskiptavinur NIB, þar sem fyrirtækið heldur áfram að efla afhendingaröryggi með fjárfestingum í jarðhitainnviðum til að mæta vaxandi eftirspurn, ” segir André Küüsvek, stjórnarformaður og forstjóri NIB.  

Orkuveita Reykjavíkur er næststærsta orkufyrirtæki landsins og veitir raforku, heitt og kalt vatn, fráveituþjónustu og ljósleiðaranet. Orkuveita Reykjavíkur er í eigu Reykjavíkurborgar (93.5 %), Akraneskaupstaðar (5.5 %) og Borgarbyggðar (1.0 %).  

NIB er alþjóðleg fjármálastofnun Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháens, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn fjármagnar verkefni á Norðurlöndunum og Eystrasaltssvæðinu sem stuðla að aukinni framleiðni og  koma umhverfinu til góða.. Höfuðstöðvar bankans eru í Helsinki en auk þess hefur bankinn svæðismiðstöð í Riga. NIB er með hæsta mögulega lánshæfismatið AAA/Aaa, hjá S&P Global Ratings og Moody’s.  

Auknar upplýsingar veita:  

Tiina Kuusela, bankastjóri, +358 10 618 0241, tiina.kuusela@nib.int 

Tommy Hellström, upplýsingafulltrúi, +358 10 618 0214, tommy.hellstrom@nib.int 

  

Related resources

Iceland • 13.4.2026

Orkuveita Reykjavíkur

EUR 32 million