NIB fjármagnar rannsóknir og þróun hjá Embla Medical

3.8.2026 Press release
Image: Embla Medical
  • NIB hefur undirritað 50 milljóna evra lán til 7 ára hjá Embla Medical hf. 
  • Fjármögnunin styður við rannsóknar- og þróunarstarf félagsins á árunum 2027–2029. 
  • Verkefnið stuðlar að nýsköpun í heilbrigðisgeiranum og þróun háþróaðrar læknatækni. 

Fjárfestingar þessar beinast að þróun nýrra og endurbættra stoð- og bæklunartækja og skyldra heilbrigðislausna, þar á meðal framförum í efnum, stafrænni tækni og umönnun sjúklinga. 

„Nýsköpun í læknatækni er mikilvægur hlekkur í því að bæta lífsgæði og styðja við sjálfbær heilbrigðiskerfi,“ segir Jeanette Vitasp, aðstoðarforstjóri & forstöðumaður útlánasviðs.  

Embla Medical hf. er alþjóðlegur framleiðandi stoðtækja og lausna í bæklunar- og hreyfanleika, með höfuðstöðvar á Íslandi og starfsemi á meira en 120 mörkuðum um allan heim. 

NIB er alþjóðleg fjármálastofnun Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháens, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn fjármagnar verkefni á Norðurlöndunum og Eystrasaltssvæðinu sem stuðla að aukinni framleiðni og  koma umhverfinu til góða.. Höfuðstöðvar bankans eru í Helsinki en auk þess hefur bankinn svæðismiðstöð í Riga. NIB er með hæsta mögulega lánshæfismatið AAA/Aaa, hjá S&P Global Ratings og Moody’s. 

Auknar upplýsingar veitir: 
Stefán Friðriksson, Senior Banker, svæðisstjóri fyrir Ísland, +358 50 311 1050, stefan.fridriksson@nib.int  

Oliver Mølvang Hermansen, Associate Communications Officer, at +358 10 618 0225, oliver.hermansen@nib.int  

Related resources

Iceland • 30.7.2026

Embla Medical

EUR 50 million