NIB fjármagnar hjúkrunarheimili og heilbrigðisstofnun þróað af Reitum í Reykjavík

- NIB hefur undirritað lán að fjárhæð 4.375 milljónir króna (29 milljónir evra) við íslenska fasteignafélagið Reiti hf.
- Lánið sem er til tíu ára er samfjármögnun og varðar umbreytingu tveggja fyrrverandi skrifstofubygginga í hjúkrunarheimili og heilbrigðisaðstöðu í Reykjavík.
- Heildarkostnaður verkefnisins er 8.750 millj. kr.
Íslenska opinbera heilbrigðiskerfið stendur nú frammi fyrir áskorunum, þar á meðal öldrun þjóðarinnar, takmörkuðu framboði á sérhæfðu húsnæði fyrir heilbrigðisstofnanir og sívaxandi eftirspurn eftir hjúkrunarheimilum. Jafnframt hefur Ísland færri hjúkrunarrými á hverja 1.000 íbúa 65 ára og eldri en önnur Norðurlönd. Ennfremur benda spár til þess að fjöldi tiltækra rýma þurfi að tvöfaldast fyrir árið 2040 til að mæta þörfum framtíðarinnar með fullnægjandi hætti.
Nýja hjúkrunarheimilið við Nauthólsveg mun hafa rými fyrir 87 íbúa og er áætlað að starfsemi hefjist á fyrri hluta árs 2027. Markmiðið er að auka framboð hjúkrunarrýma og verður það samþætt heilbrigðis- og félagsþjónustu til að losa um pláss á sjúkrahúsum, sem leiðir til sparnaðar fyrir opinbera heilbrigðiskerfið.
Ný læknamiðstöð við Ármúla í Reykjavík mun auka afkastagetu í skurðaðgerðum á bilinu 50–60% samanborið við núverandi aðstöðu læknamiðstöðvarinnar, með tveimur skurðstofum, tveimur aðgerðastofum fyrir minni háttar skurðaðgerðir, stækkaðri legudeild og 28 læknastofum fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Aðstaðan, sem rekin er af einkarekinni heilbrigðisstofnun, mun veita skjótari aðgang að minni háttar skurðaðgerðum og sérfræðitímum og hjálpa til við að draga úr álagi á opinbera heilbrigðiskerfið.
„Fjárfestingin er liður í að bregðast við þeim áskorunum sem íslenska heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir og tryggja íslensku þjóðinni hágæðaþjónustu. Auk þess mun skilvirkari og skjótari aðgangur að hjúkrunarheimilum styðja sveitarfélög í að viðhalda jákvæðri fjárhagslegri afkomu,“ segir André Küüsvek, stjórnarformaður og forstjóri NIB.
„Reitir byggja á áratuga langri reynslu í fasteignageiranum og fara með stóraukin umsvif í þróun með áherslu á uppbyggingu sem gagnast samfélaginu. Þessi tvö verkefni eru gott dæmi um hvernig hægt er að umbreyta núverandi byggingum á skilvirkan hátt til að mæta aðkallandi eftirspurn eftir hjúkrunarheimilum og húsnæði fyrir heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Fjármögnun NIB styður við stefnu okkar um að þróa hágæða fasteignir fyrir opinbera og einkarekna aðila í heilbrigðisþjónustu,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.
Reitir hf. er íslenskt hlutafélag og hefur verið skráð á Nasdaq Iceland síðan 2015. Starfsemi Reita felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem að stærstum hluta er verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignir félagsins eru í dag rúmlega 150 talsins og safnið er um 490 þúsund fermetrar að stærð. Meðal fasteigna Reita má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, Hótel Borg, Hotel Hilton Nordica og Hótel Reykjavík Natura auk skrifstofubygginga við Höfðabakka 9 og að Vínlandsleið. Þar að auki er félagið virkt í fasteignaþróun og fer með þróun og uppbyggingu á yfir 1.000 íbúðum og 130.000 fermetrum af atvinnuhúsnæði.
NIB er alþjóðleg fjármálastofnun Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháens, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn fjármagnar verkefni á Norðurlöndunum og Eystrasaltssvæðinu sem stuðla að aukinni framleiðni og koma umhverfinu til góða.. Höfuðstöðvar bankans eru í Helsinki en auk þess hefur bankinn svæðismiðstöð í Riga. NIB er með hæsta mögulega lánshæfismatið AAA/Aaa, hjá S&P Global Ratings og Moody’s.
Auknar upplýsingar veitir:
Daniel Kangasmaa, Senior Banker, +358 10 618 0304, daniel.kangasmaa@nib.int
Tommy Hellström, Associate Communications Officer, +358 10618 0214, tommy.hellstrom@nib.int

